|
|
18.03.2006 01:31:28 / blenda
Hæ hæ fyrir þá sem vita ekki þá erum við komin heim og komum
öllum surprise. Voða gamana!!!
»
10.03.2006 06:51:46 / blenda
Mið. 1. Mars
Við fórum út á flugvöll um 10 um morguninn og vorum næstum búin
að missa af fluginu þar sem við vildum fá okkur sígó hálftíma fyrir
flugið og þurftum að fara aftur í gegnum securitiið og þá var komin
rosa röð svo þegar við komum voru allir komnir um borð. En flugið
gekk vel. Flugum í 3 tíma til Texas og vorum þar í 4 klst. Tókum
svo flug frá Texas til Sacramento og það flug tók 3.5 klst. Þar
tóku Ollý og Terry á móti okkur og við fórum heim að sofa þar sem
vorum rosa þreytt eftir 14 tíma ferðalag.
Fim. 2. Mars
Þegar við vöknuðum var Margrét heima svo við heilsuðum henni en
hún þurfti svo að fara að vinna. Við Siggi fórum niður í svona
verslunar center og fórum í Old Navy og nokkrar búðir þar. En svo
ætluðum við að fara á bensínstöðina til að kaupa kveikjara og
sígarettur því á flugvellinum voru allir kveikjarar teknir af
okkur. En maðurinn spyr okkur um skilríkji og ég sýni honum
ökuskírteinið mitt sem er international og hann segist ekki vera
viss um að hann geti tekið það og fer eitthvað bakvið og kemur
aftur og segist ekki taka við því. Svo ég vildi bara að fá að tala
við yfirmann hans og þessi feita gribba kemur og segist ekki taka
við því því hún viti ekki hvort það sé falsað. Svo ég spyr hvort
túristar gætu ekki komið og keypt sígarettur :NEI bara california
manneskjur. Svo ég spyr hana hvort ég geti þá allavegana keypt
eldspítur. Þá segir hún : i can give you some if you stop making
troble. Þetta er setning sem ég heyri í bíómyndunum og ég hélt að
ég mundi ekki lenda í að einhver mundi segja þetta við mig hehe. En
vá hvað við vorum pirruð. Og það voru svona fimm manneksjur inná
bensínstöðinni og ein konan segir: þetta er bara fáranlegt svo ég
skal kaupa þetta fyrir ykkur og maðurinn sagði nei við leyfum það
ekki. Svo kom annar strákur á eftir okkur og sagðist vilja fara inn
og kaupa f. okkur hann var þarna inni og hann trúði bara ekki hvað
konan var dónaleg við okkur. En jæja svo um kvöldið komu Margrét,
Jerry, Kristín og Kelly og við borðuðum alveg æðislegan mat
saman.
Fös. 3. Mars
Við fórum með Margréti og skoðuðum Folsom prison (hafðið ekki
heyrt þetta áður í bíómyndunum) sem er eitt mesta öryggisfangelsi í
heimi og þar sem Johnny Chas söngvari sat inni í myndinni Walk The
line. Svo fórum við í gamla bæinn og fórum í nokkrar búðir og
skoðuðum okkur um. Þetta var án gríns eins og að koma inn í gamla
bíómynd gamli bærinn er ótrúlega flottur staður og sýnir hvernig
allt var í gamla daga, og það . Við fengum okkur hádegismat á
veitingastað og fengum okkur góðan mat. Svo fórum við í ráðhúsið
þar sem skrifstofa Arnold Swartzenegger (kann ekki að skrifa) er og
skoðuðum þar skrifstofur sem voru óbreyttar frá 1906, Gamla
peningaskápa og fleira. Þegar við komum út sá Siggi íkorna en ég sá
hann ekki hann fór í burtu. Það var lögga þarna sem var á hesti og
allt saman hehe.
Lau. 4. Mars
Við vöknuðum snemma eða um átta og lögðum af stað með Ollý
frænku til San Francisco. Við byrjuðum á því að fara í hippa
hverfið sem er eiginlega óbreytt frá því á hippatímabilinu og maður
sér það á litunum á búðunum og hvernig fólið þar er. Svo fórum við
yfir golden gate brúnna og stoppuðum á stað þar nálægt með góðu
útsýni yfir Golden Gate og Alckatras fangelsið sem er á litilli
eyju fyrir utan San Francisco. Við keyrðum upp bröttustu brekku sem
ég hef án gríns keyrt upp um. Þetta var alveg geggjaður dagur við
fengum okkur hádegismat með Ollý frænku. Skutlaði Ollý okkur svo
niður í bæ og skoðuðum við okkur um og fórum að versla þangað til
lestin fór með okkur til Sacramento. Ég er ekki að geta sett
myndirnar inná svo þið verðið bara að sjá þær þegar við komum.
Sjáumst svo bara eftir 12 daga
»
04.03.2006 03:09:25 / blenda
Hae Edda tad eru ekki islenskir stafir a tessari tolvu.En vid
lendum 2 timum a undan ter svo vid hittumst a fort lauderdale
flugvelli tar sem tu saekir toskurnar ykkar svo vid verdum tar ad
bida eftir ykkur. Eg atla ad reyna hringja i ykkur a morgun ef eg
get er ekki viss um ad tad virki svo ef ekki ta hittumst vid bara
tar sem tu saekir toskurnar. ok skan vonandi gengur ta bara allt
vel en hafdu simanr. mitt med ter skrifad 954-2539-859. En jaja er
hja Olly fraenku nuna og blogga um tad tegar eg kem til florida vid
erum neflilega ad fara eftir 5 min til margretar ad borda. tangad
til nast...
»
28.02.2006 07:53:39 / blenda
»
27.02.2006 02:27:41 / blenda
Hvað eruð þið alveg hætt að skrifa komments inná síðuna?
»
25.02.2006 16:24:54 / blenda
jæja nú ákvað ég að blogga smá því ég er
alltaf að heyra að eg sé ömulegur bloggari. Ég er búin að
setja nýjar myndir inná. Er eitthver sem veit heimasíðuna
hennar Ragnheiðar frænku? Nenniði þá að skrifa það í
comments. Við ákváðum að fara út í garð í dag og læra en það
var bara ekki hægt við fórum bara í sólbað í staðinn það
var alveg þvílíkur hiti í dag mjög næs. Siggi og Harrison
fóru um daginn kl 4 um nóttina og keyrðu niðrá Keys siðsta
punkt Bandaríkjanna og fóru að veiða, þeir fórum á party bát,
það eru stærri bátar sem taka fleiri um borð. Það var
ótrúlega gott veður, hann og Harrison vorum ekki þeir
heppnustu þennan dag en veiddum þó 4 fiska, en það var fólk
um borð sem vissi greinilega hvað það var að gera og var með
réttu græjunar til að veiða og það komu nokkrir stórir hjá
þeim, en áður en maður fer langt út á sjó á bátnum stoppa
þeir og reyna að ná lifandi beitu og lokka hana til sín með
einhverju sem þeir henda út í, en í þetta skiptið kom
risastór skjaldbaka og var að þvælast fyrir þeim og var á
stærð við Sigga. Litlu frænkur hennar Jónu komu í gær og
gistu hjá okkur og það var pöntuð pizza og það var bara svaka
stuð hjá okkur. Þær eru í sundi núna og ég ætti að fara
skella mér.
Þangað til næst....
Ég er búin að setja inn nýjar myndir fyrir þá sem tóku ekki
eftir því!!!
»
15.02.2006 04:54:07 / blenda
Hæ hæ allir saman. Jóna María kom heim frá Bahamas í gær og hún
sagði ferðina hafa verið sú besta. Ég var að vinna á ströndinni um
helgina og náði að selja 5 sléttujárn yfir helgina. Við fórum í Old
Navy og Siggi minn tapaði sér alveg í henni hann segist sjaldan
labba inn í fatabúð og honum finnist nánast allt flott. Það er
yfirleitt þannig hér að þú labbar inn og þú þarft að hafa fyrir því
að finna flott föt. Mér finnst þau troða svo mikið á slárnar að
maður nennir ekki að skoða. En vá í dag var ég að vinna og þessi
hjón koma inn og spyr konuna hvort hún vilji prófa en hún var ekki
að nenna svo kallinn hennar sagði henni endilega að prófa svo hún
settist niður og varð rosalega hrifin og ákvað að kaupa. En
maðurinn hennar tók bara kast á mig fyrir að selja konunni
sléttujárn og varð alveg öskureiður, spurði mig um nafn og hvaðan
eigendurnir voru, hvort við ættum nafnspjald, hvar þessu sléttujárn
vorum búin til og hann var bara alveg brjálaður svo segir hann við
mig að hann komi eftir tvær vikur með sléttujárnið til baka því
hann héldi að þær yrði bilað fyrir þann tíma. Hann tók það skýrt
fram að hann kæmi á eftir mér en ekki fyrirtækinu svo ég var að
reyna róa hann niður og var að segja honum að við höfum ekki fengið
eitt sléttujárn sem hefði bilað. NEI NEI heppna Blenda sá konu
standandi fyrir aftan hann og var að bíða eftir að fá að tala við
mig og hún kom að skila sléttujárni sem bilaði. Svo kallinn VÁ hann
brálaðist í orðsins fylgstu merkingu. Bara við erum búin að vera
hérna í 10 mín og ein kona kom og skilaði því það var bilað. (þá
var ég búin að strauja debetkortinu). Jæja nóg af þessu en ég var
svo svo hrædd ég hélt að hann mundi ....kannski lítil augu hér
inná. Jæja mig hlakkar svo til að hitta Rakel og Rut að ég er alveg
að deyja mér finnst ég búin að vera hérna úti í heila eilífð. En
jæja þangað til næst....Elska ykkur og Edda þú ert alltaf að
segjast ætla að hringja en gerir það aldei...ömuleg vinkona
»
11.02.2006 19:09:45 / blenda
Jæja þá erum við búin að vera í Florida í einn mánuð og ennþá er
allt að koma manni á óvart. Við fórum í sirkus
sem er í Miami, Jóna náði að heilla einhvern mann í mollinu og hann
gaf henni 4 miða. Þetta var alveg ótrúlega
flott, þetta er loftfimleikasirkus og allir hendandi öllum út um
allt og lifandi tólist með. Jóna og Danni fóru
til Bahamas í gær og verða í þrjá daga yfir Valentínusarhelgina, og
Blenda ákvað að vinna á meðan þau væru úti
þannig það má segja að ég sé einn með sjálfum mér þessa dagana, en
núna er ég með bílinn og kemst þess vegna
á fleiri staði að skoða. Veðrið er búið að vera mjög gott síðustu
daga 25-30 stiga hita og maður er loksins
komin með alminnilegan lit til að sýna þegar maður kemur heim. Ég
og Blenda erum búin að panta far til New York
að hitta Rut og Rakel, en ég var eitthvað að frétta að systir minni
litist ekkert á að fá okkur þarna yfir, það
er nú meiri spennan að hitta bróðir sinn eftir mánuð hhuuuummmmm
, en það er mjög kallt í New York núna,
það snjóar og leiðindi en ég vona það verði hætt þegar við komum
yfir. Ég er ennþá að bíða eftir að komast á
alminnilegan bát og fara að veiða, ég er ennþá að reyna úti í garði
en fæ ekkert nema einhverja litla titti sem
berjast ekki einu sinni á stönginni, en við erum að reyna að koma
saman ferð og keyra niður að Florida Keys sem er
neðst á Florida og leigja bát í einn dag og veiða, og það á að vera
ótrúlega fallegt þar og tær sjó og MJÖG stórir
fiskar.
Ég vona að allir hafi það gott og sakna ykkar allra........
Siggi in America   
»
03.02.2006 16:38:00 / blenda
Hæ hæ öll sömul. Það er allt gott að frétta
af okkur við erum núna á ströndinni í Fort Lauderdale. Í gær
löbbuðum við niður á strönd í Hollywood sem er bærin við
hliðinna á okkar. Ég held að við höfum labbað í svona 3 tíma
þetta var alveg æði en tókum svo leigubíl til baka.
Leigubíllinn kostaði 10 dollara en við létum hann fá 22
dollara og ætluðum að fá afgang en hann fór bara en kom svo
til baka til að láta okkur fá 10 dollarana. Maður bjóst ekki
við því hérna. En allavegannna þá erum við að láta opna síma
í dag sem við verðum með S: 001-954-253-9859. Svo þið getið
hringt í það núna. Edda það er hotel sem heitir Mar bey hotel
sem er mjög nálægt okkur. Við erum að hugsa um að fara til
New York til að hitta Rut og Rakel.En það er ekki alveg
ákveðið en okkur langar til að fara. En jæja ég er ekkert að
segja hér svo ég held að ég hætti bara.
Love you og ég sakna ykkar allra ótrúlega
Blenda og Siggi
P.s. ég setti fleiri myndir inn á Venezuela
»
31.01.2006 17:59:33 / blenda
Við komum Miðvikudaginn 25.01.06 með
spænsku flugfélagi, flugið gekk ágætlega þangað til vélin
hristist svo mikið að ég hélt að þetta væri mitt síðasta .
Fólkið í vélinni var öskrandi og margir fóru bara að gráta
eftir þetta. Ég get ekki ýmindað mér hvernig það hefði verið
að vera á klósettinu á þessum tíma hehe. Við fórum í svo í
strandarhúsið daginn eftir og fórum á ströndina. Við fórum í
bát og sigldum í u.þ.b. 20 mín og var það bara sjórinn. Það
er alveg ótrúlegt að koma til Suður-Ameríku, annað hvort er
fólkið mjög ríkt eða mjög fátækt. Fólk býr allstaðar í litlum
kofum með engri hurð og það voru heilu hverfin þannig. Svo er
það umferðin þarna díses þetta er bara frumskógarlögmálið
hver er frekastur. Fólk þarf ekki einu sinni að hafa bílpróf,
það bara byrjar að keyra um 14 ára. Fimmtudagskvöldið var
æðislegt við borðuðum í strandarhúsinu og fengum
grænmetisrétt í forrét, naut í aðalrétt og ostaköku í
eftirrétt. Það var alveg stjanað við okkur. Fólkið þarna er
alveg yndislegt. Svo spjölluðum við langt fram á kvöld. Á
föstudeginum fórum við aftur á ströndina en fórum á annan
stað einskonar litla eyju. Þar kafaði Siggi í kóralrifunum
með fullt af fallegum fiskum í öllum regnbogans litum. Þetta
var nú eitthvað til að fullkomna daginn hjá Sigga mínum Um
kvöldið fórum við til mömmu hans Danna. Hún er alveg
æðislegur karakter.Svo var brúðkaup á laugardeginum en við
gátum ekki verið lengi þar sem við vorum með matareitrun og
ældum og ældum alla nóttina. En jæja nú ætla ég aðeins að
kvarta það eru allir að biðja okkur um að fá okkur símanúmer
svo þið getið hringt en ég er búin að segja ykkur að hringja
í Jónu síma og hann er inná hér til vinstri. Þóra systir er
eina sem er búin að hringja í mig. Þannig fólk farið nú að
hringja svo maður fái nú eitthvað að heyra í ykkur. Við erum
farin að sakna ykkar svolítið.
Love you all...kiss kisss
»
24.01.2006 00:00:27 / blenda
Jæja þá fékk maður útrás ársins held ég, ég og Harrison fórum á
skotsvæði og leigðum okkur skammbyssur,
(Smith and Wesson 9mm) fengum svo spjöld til að skjóta á, þetta var
ótrúlegt þvílíkt adrenalín sem fór
um líkaman að skjóta úr byssu og maður fann ekkert fyrir að skjóta,
og kallin hitti meira segja spjaldið
. Það er ótrúlega gott veður í dag svona 26 stiga hiti og logn
þannig kannski það fara að koma smá litur á mann
á næstu dögum. En á miðvikudaginn erum við að fara til Venezuvela
þar sem er en heitara, það er búið að bjóða okkur
í brúðkaup hjá bróðir hans Danna og við búum í strandhúsi og
ströndin við hliðina, kippa af bjór, gott
handklæði....... já já ég er mættur á svæðið . Ég var að heyra í
mömmu og ömmu og maður er farin að sakna ykkar
allra meira en maður hélt, eins og maður var nú feigin að losna frá
ykkur..... nei smá djók Við elsum ykkur öll og
söknum ykkar, og ekki gleyma að skrifa í gestabókina, það er svo
gaman að lesa frá ykkur. Hafið það gott þangað
til næst...
Siggi in America OUT...
»
19.01.2006 17:58:52 / blenda
Jæja við erum í fríi núna og sitjum hér á Starbucks og er að hlaða
inn myndum. Við Jóna erum að fara í tásu og nagla snyrtingu svo
ætlum við að kaupa okkur kjól. Við vorum að vinna mán til mið og ég
náði að selja 4 sléttujárn þá er ég búin a vera með 265 kr á
tímann  . En ég setti inn myndir af íbúðinni svo þið getið séð. Ég
mun setja inn fleiri myndir bráðlega. Love you all bæsó!!!
»
15.01.2006 23:45:01 / blenda
Netið er eiithvað að stríða okkur svo munum láta fleiri myndir
seinna hun gat ekki hlaði okkum myndunum. En munið ef þið skoðið
myndir ´þá eru oft 2 síður af myndum
bless í bili...
Þangað til næst...!!!
»
15.01.2006 22:59:30 / blenda
Hæ öll sömul ég er enn á lífi það er ekki
internet í íbúðinni okkar svo ég er ekki að geta skrifað
neitt hér inná, en vonandi fáum við internet strax í næstu
viku, þá verður þetta strax skárra. Við erum bara búin að
vera tapa okkur í verslunum. Við fórum í Wallmart í gær...vá
hvað er allt til þarna..maður varð bara ringlaður þarna inni.
Við erum í 3 mínútna göngufjarlægð frá Burger King. Við fórum
á ströndina í fyrradag og fengum okkur að borða og löbbuðum
ströndina (ég set myndir inná á eftir), síðan fórum við í
Wallgreens sem er sem stór búð sem allt er til í nema föt. En
þegar við komum inn á var eitthver maður búin að kúka á allt
gólfið þarna inni, þetta var ógeðslegt. Í gær var ekkert
sérstakt veður það var svolítið kalt, við ákváðum að við
skildum fara í sund í gærmorgun en það var ekki veður til
þess. Í gærkvöldi voru þrumur og eldingar og við vorum að
djamma hérna í íbúðinni með vinum hans Danna, krakkar frá
Venesuela. Rosalega fínir krakkar. Það var rosa gaman Siggi
var að gefa þeim ópalskot..En jæja ég er á internetkaffi núna
en vonandi fáum við internet sem fyrst ég er að verða geðveik
á að hafa ekkert internet. Þá verð ég duglegri að
blogga.
Þangað til næst... Ég mun setja heimilisfangið mitt inná hér
vonandi fljótlega.
Símanúmerið hennar Jónu er 001-954-2979-503 , þið getið hringt í
hana til að ná í mig og hún borgar ekkert fyrir það.
»
13.01.2006 05:24:19 / blenda
Hæ hæ það er ömulegt þegar ég fer inn á msn
á kvöldin þá eruð þið öll sofnuð en í íbúðinni sem við fáum á
morgun er ekki internet, en það er netkaffi nálægt svo við
munum bara fara þangað að blogga. Við fórum í RISA moll í dag
og vorum í u.þ.b. 7-8 tíma í því molli bara ða versla. Þetta
var alveg geggjað. Ég keypti mér alveg 6-7 boli, 2 skó og
margt margt fl. Ég verð víst að bæta því inn í að ströndin er
í 7 mínútna göngufæri frá íbúðinni okkar Siggi minn er
alveg í skíunum því í garðinum okkar er hægt að veiða fisk,
þar er fiskiaðstaða, stálborð til að skera fiskinn, og
klakavél. Hann er að fara með Harrison (manninum hennar Binnu
sem er systir mömmu Jónu) en hún býr hér líka. Þeir fara þá á
bát og fara langt út á haf að veiða fisk sem heitir Kingfish
sem er venjulega 40-50 pund. En hann á víst að vera voðalega
góður.
Þangað til næst..!!!
»
Síður: 1 2
|
|